Velferðalag
Að Velferðalagi stöndum við Ilmur Dögg Níelsdóttir, Ólína Þorleifsdóttir og Silja Þórðardóttir.
Við sameinum ólíkan faglegan bakgrunn og sameiginlegan áhuga á því sem hjálpar fólki að þrífast. Hjá okkur mætast reynsla af skólastarfi og stjórnun, listsköpun, hjúkrun og heilsueflingu, jóga og slökun. Jákvæð sálfræði er sameiginleg undirstaða starfsins.
Við bjóðum námskeið og vinnustofur þar sem fræðsla og reynsla þátttakenda fara saman. Við leggjum áherslu á samtal og virk verkefni. Þátttakendur fá tækifæri til að prófa aðferðir og finna leiðir sem geta nýst í eigin lífi og starfi.
Við höldum til dæmis námskeið á Heilsustofnun NLFÍ fyrir ýmsar starfsstéttir eins og kennara og starfsfólk skóla. Við bjóðum einnig upp á vinnustofur skóla og aðra vinnustaði. Jafnframt vinnum við að þróun námskeiða fyrir fleiri hópa sem sinna fólki í störfum sínum.
Markmið okkar er að gera þekkingu um vellíðan aðgengilega og hagnýta í lífi og starfi.

Ilmur Dögg Níelsdóttir
Hjúkrunarfræðingur með áherslu á heilsueflingu og vellíðan
Ilmur er hjúkrunarfræðingur með reynslu af skólahjúkrun. Hún hefur lokið viðbótarnámi í heilsugæsluhjúkrun og geðheilbrigði ásamt diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði.
Í Velferðalagi leggur Ilmur áherslu á heilsueflingu og hagnýtar leiðir til að hlúa að eigin líðan. Bakgrunnur hennar tengir saman þekkingu á heilsu og reynslu af því að styðja fólk í daglegu lífi.

Ólína Þorleifsdóttir
Kennari og markþjálfi með reynslu af skólastjórnun
Ólína er kennari og markþjálfi með reynslu af kennslu og stjórnun í skólastarfi. Hún hefur lokið meistaraprófi í stjórnun menntastofnana og diplómanámi í sérkennslufræði. Hún hefur einnig lokið námi í stjórnendamarkþjálfun og diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði.
Í Velferðalagi leggur Ólína áherslu á styrkleika og vellíðan í starfi. Hún tengir fræðin við dagleg viðfangsefni kennara og stjórnenda og leiðir samtal um hvernig þekking getur orðið að raunhæfum breytingum.

Silja Þórðardóttir
Lyfjafræðingur og jógakennari með áherslu á vellíðan á sviði lista og velferðar.
Silja er lyfjafræðingur og jógakennari með viðbótarmenntun í áfallamiðaðri jógakennslu og leiðsögn í jóga nidra og öndun. Hún hefur einnig lokið diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði og meistarapróf í listum og velferð.
Í Velferðalagi leggur Silja áherslu á tengsl líkama og líðanar. Hún leiðir æfingar í hreyfingu og slökun og hefur jafnframt unnið að verkefnum á sviði lista og velferðar.
“Our shared mission is to translate positive psychology into warm, accessible practices that empower people to thrive both at work and in daily life.”
The Velferðalag team